Skip to product information

Chili Grýta

Chili Grýta

 
Regular price 899 kr
Regular price 899 kr Sale price
SAVE Liquid error (snippets/price line 111): Computation results in '-Infinity'% Sold out

„Það kom mér skemmtilega á óvart hvað grýturnar eru ótrúlega góðar! Algjör óþarfi að eyða mörgum klukkutímum í að elda, þetta kom betur út hjá mér en margt annað sem ég hef eldað sjálf frá grunni. Í þokkabót er þetta mjög gott fyrir budduna.“

Hulda S.
Chili Grýta

Chili Grýta

Regular price 899 kr
Regular price 899 kr Sale price
SAVE Liquid error (snippets/price line 111): Computation results in '-Infinity'% Sold out

Chilli-grýta sem yljar og gleður

Hitaðu kvöldið með ilmandi og bragðmiklu chilli sem þú getur gert bæði „con carne“ með nautahakki eða „sin carne“ með sojahakki.

Bættu bara við hakkinu þínu að vali, rauðlauk, smá salti og olíu – og fáðu dásamlega bragðgóða máltíð fyrir allt að fjóra.

Fyrir þá sem vilja dekra aðeins meira við sig býður lúxusútgáfan upp á blaðlauk, græna papriku, stjörnuanís, dökkt súkkulaði (já, í alvöru), rjóma og sýrðan rjóma – silkimjúka, kryddaða blöndu með dýpt sem hentar fullkomlega á köldum dögum.

Tilbúin á um 30 mínútum – einföld, næringarrík og full af bragðtónum sem kitla bragðlaukana.

Þú þarft:

  • 400 g nauta- eða sojahakk
  • 1 rauðlauk, fínt skorinn
  • Salt og olíu

Lúxus útgáfa:

  • 1/2 blaðlaukur, smátt skorinn
  • 1 græn paprika, smátt skorin
  • 1 stjörnuanís
  • 50 g dökkt súkkulaði
  • 400 ml rjómi
  • 100 ml sýrður rjómi

Meðlæti:

  • Nachos
  • Guacamole
  • Blandað salat

Aðferð:

Hitið djúpa pönnu eða pott við miðlungshita.


Steikið hakkið í 5-7 mínútur. Bætið paprikunni, laukunum og stjörnuanísnum út í og steikið í 2 mínútur til viðbótar.


Bætið við 700-800 ml af vatni (eða 400 ml rjóma og 300-400 ml vatni fyrir lúxus útgáfuna) ásamt innihaldi þessa poka og hrærið vel.


Þegar suðan kemur upp, lækkið hitann og látið krauma í 15-20 mínútur með lokinu á. Hrærið reglulega.
Bætið í lokin dökku súkkulaði við og hrærið vel. Fjarlægið stjörnuanísinn og smakkið til með salti. Bætið sýrðum rjóma og nachos við réttinn.


Berið fram með nachos, guacamole og blönduðu salati.

 

Innihald:
Hrísgrjón, nýrnabaunir, veggie chili (16%) (sojaprótein, tómatar, paprikukrydd, kassava sterkja, salt, náttúruleg bragðefni, laukur, paprika, sólblómaolía, maís, krydd), hafrar (glútenlausir), chia fræ, grænmetiskraftur (glúkósasíróp, sykur, grænmetisbragðefni, gulrætur, steinselja, sellerí, blaðlaukur, graslaukur, maltódextrín, sveppir, brokkólí, pálmaolía, sýra (E330)), sykur, salt, hvítlaukur, chili duft (0,5%).

Ofnæmisvaldar:
Sjá feitletruð innihaldsefni. 

Næringargildi í 100 g Eldað* Lúxus**
Orka 1467 kJ  2435 kJ 4553 kJ
347 kcal 580 kcal 1094 kcal
Fita 5,1 g 27 g 77 g
þar af mettuð 0,6 g  7,8 g 37 g
Kolvetni 60 g 55 g 65 g
þar af:
sykurtegundir 4,7 g 3,3 g 10 g
Trefjar 8,9 g 7,6 g 10 g
Prótein 14 g 29 g  34 g
Salt 3,8 g 1,7 g 1,8 g

*Á mann miðað við fjóra skammta og eldað eftir „Þú þarft“ leiðbeiningum án meðlætis.
**Á mann miðað við fjóra skammta og eldað eftir „Lúxus“ leiðbeiningum með meðlæti.

local_shipping

Sending og afhending

Við sendum allar pantanir næsta virka dag.

Afhending er svo samdægurs á Höfuðborgarsvæðinu og 1-3 virka daga á landsbyggðinni.

Við sendum allar pantanir með Dropp.

sell

Frí sending

Pantaðu fyrir 2500 kr og þú getur sótt frítt á afhendingarstaði Dropp.

Pantaðu fyrir 5000 kr og þú getur pantað fría heimsendingu með Dropp.

View full details

Sjáðu hvernig grýturnar verða að máltíð

Stutt og hnitmiðuð myndbönd sem sýna hvernig þú breytir pokanum í rjúkandi góða máltíð fyrir fjóra. Smelltu á myndböndin hér fyrir neðan til að horfa.

Einn poki, máltíð fyrir fjóra

Þetta er ekki bara fljótlegt – þetta er matur sem hittir í mark.

Með einum poka og einföldum hráefnum sem þú bætir sjálf(ur) við, útbýrðu heita og næringarríka máltíð fyrir fjóra.

Hvort sem það er í miðri viku, í bústaðnum eða á sunnudagskvöldi.

Þægilegt. Fljótlegt. Mettandi.

Grýturnar okkar gera þér kleift að bjóða upp á heitan, næringarríkan og bragðgóðan heimilismat. Með mun minni fyrirhöfn og hagkvæmara en áður.

check_circle
Hagkvæmt og ljúffengt

Þú færð grunninn að dýrindis heimilismat fyrir fjóra – einfalt, bragðgott og budduvænt.

check_circle
Heimilismatur á styttri tíma

Minna undirbúningur, meira bragð – grýtan er fljótlega tilbúin með einföldum hráefnum sem þú bætir við.

check_circle
Fyrir allt að fjóra fullorðna

Einstaklega hentugt fyrir kvöldmatinn heima, bústaðahelgina eða nesti fyrir næsta dag.

check_circle
Minna vesen í eldhúsinu

Með flest allt oftast bara í einum potti spararðu bæði áhöld og uppvask – og færð meiri tíma til að njóta.

Lúxus útgáfa fyrir þá sælkera sem vilja aðeins meira

Grýturnar okkar eru hannaðar sem einföld og hagkvæm lausn fyrir fjölskyldur og alla sem vilja geta eldað ljúffengan heimilismat án þess að flækja hlutina.

En fyrir þá sem vilja setja smá punkt yfir i-ið, er einnig lúxusútgáfa af hverri grýtu – með meiri dýpt í bragði og sérvalinni samsetningu.

Hvort sem þú ert að leita að skjótum kvöldmat eða sælkeraútgáfu fyrir helgina, þá getur grýtan hentað þínum þörfum.

acute
Til að elda heimilismat fljótar

Þú bætir við vatni og fersku hráefni – restin er í pokanum.

favorite
Til að koma á óvart í eldhúsinu

Bragðmikil máltíð sem lítur út (og bragðast) eins og þú hafir eldað í marga klukkutíma.

diamond
Til að gera vel við sig á sunnudagskvöldi

Slakaðu á, leyfðu grýtunni að malla og njóttu góðrar máltíðar án þess að flækja málin.

group
Til að bjóða í matarboð án stressins

Þú ert með allt á hreinu – án þess að standa lengi yfir pottunum.

dining
Til að bjóða upp á einhvað nýtt og skemmtilegt

Grýtan kemur með ferskan snúning á heimilismatinn.

Alltaf góð hugmynd að eiga grýtu til

Hvort sem þú vilt elda fljótt, bjóða upp á eitthvað nýtt eða bara passa budduna – þá er alltaf tilefni til að græja eina góða grýtu.

  • Sló í gegn hjá krökkunum

    „Kjúklinga grýtan sló í gegn á mínu heimili! Fljótlegt, bragðgott og miklu betra en ég átti von á. Eldaði fyrir fjölskylduna og allir vildu meira.“

    - Harpa S.

  • Tilbúið á hálftíma

    „Fullkomið að eiga svona til í skápnum. Ég bætti bara við kjúkling og smá grænmeti og máltíðin var klár á hálftíma. Sparar bæði tíma og uppvask!“

    - Ragna B.

  • Auðvelt að útbúa

    „Ég leyfði 12 ára syni mínum að sjá um matinn og hann stóð sig frábærlega! Grýtan var fljótleg og auðveld fyrir hann að útbúa, og bragðið var eins og hann væri orðinn kokkur. Við vorum öll hissa hvað þetta var gott!“

    - Halldóra T.